Main menu:
Artex ehf var stofnað á miðju ári 2007 og sérhæfir sig í afþreyingu.
Við erum með svokallað LaserTag í Brúarhvammsreit við Þorvaldsdalsá og litboltavöll að Krossum á Árskógsströnd.
LaserTag
Við erum með 20 byssur sem við setjum upp eftir óskum hverju sinni og fer það þá eftir leik sem spilaður er. Drægni byssana er talsverð, eða um 150 metrar.
Þessi búnaður hentar því bæði til leiks innan- og utandyra.
Spilarar setja á sig ennisband sem tengt er byssunni og reyna síðan að hitta andstæðinginn.
Þrátt fyrir nafnið þá er ekki um lasergeisla að ræða. Laser tag er búnaður sem sendir infra rautt ljós úr einu tæki í annað sama kerfi og notað er í fjarstýringu á sjónvarp. Þetta er algjörlega hættulaust og enginn sársauki því fylgjandi að vera hittur.
Litbolti
Á litboltasvæðinu erum við með 15 Tippmann Custom merkjara og líka 15 litboltaboga.. Mjög svipaður kraftur er við skot úr bogamerkjurunum og í venjulegum merkjurum.
Þar er þó ekkert þrýstiloft, einungis kraftar spilarans sem gilda.
Bogarnir eru stillanlegir frá 20- 25 kílóa útdráttarkraft. Þannig að spilarinn þarf að vera sæmilega handsterkur til að geta skotið úr boganum.
Magasín eru á bogunum og taka þau ca 15 kúlur.
Nánari upplýsingar eru í síma 8243990 eða á haukur@hittu.net
Heimasíða fyrirtækisins er www.hittu.net

