Main menu:
Bruggsmiðjan ehf er staðsett á Árskógssandi og framleiðir hinn vinsæla bjór Kalda.
Kaldi er bruggaður eftir Tékkneskri hefð síðan 1842. Markmiðið í framleiðslunni var að búa til vandaðan bjór
með miklu bragði. Það er ýmislegt sem að gerir Kalda sérstakan og frábrugðin hefðbundnum bjór. Það er einungis notað allra besta hráefni sem völ er á. Einnig var valið að hafa hann eins hollan og ferskan og mögulegt er. Þess vegna er Kaldi ógerilsneyddur, án viðbætts sykurs og með engum rotvarnarefnum.
Kaldi er eini ógerilsneyddi bjórinn á Íslandi.
Það eina sem notað er í bjórinn er 4 tegundir af byggi sem þykir það besta sem völ er á, 3 tegundir af humlum, ger og vatn. Allt þetta hráefni er sérpantað frá Tékklandi, fyrir utan að sjálfsögðu Íslenska vatnið sem að við fáum úr lind við Sólarfjall við utanverðan Eyjafjörð. Það er einmitt vatnið sem á stóran þátt í að gera bjórinn svona góðan. Kaldi er fáanlegur í flestum vínbúðum og á nokkrum veitingastöðum um allt land þó svo að oft sé hann ekki auglýstur sérstaklega, en þá er um að gera að spyrja um hann.
Bruggsmiðjan tekur á móti gestum gegn gjaldi og þarf að panta í síma 466-2505 eða 861-3007.
Heimasíða Bruggsmiðjunnar ehf er www.bruggsmiðjan.is
