Árskógsströnd


Go to content

Dýragarðurinn

Dýragarðurinn á Krossum er staðsettur ca. 35 kílómetra norðan Akureyrar og 8 kílómetra innan Dalvíkur. Á Krossum hefur lengst af verið hefðbundinn búskapur en undanfarin ár hefur þar verið nautgriparækt. Á vordögum 2005 var ákveðið að standsetja dýragarð og var hann opnaður í lok júlí það ár. Í garðinum eru eftirtalin dýr.
Hestar, kýr, kindur, geitur, svín, hænur, endur,kanínur, kettir, refir, skrautdúfur og ungviði tengt þessum dýrum.
Þessu til viðbótar er stórt veitingatjald og stór hoppudýna (svokallaður ærslabelgur 100 m2) fyrir "ungviðið " að leika sér á. Einnig eru nokkrir fótstignir bílar fyrir 3-8 ára krakka.
Zorb ball er enn eitt leiktækið, þetta er 3 metra há uppblásin kúla sem lysthafendur skríða inní, óla sig niður og láta sig flakka niður brekku.

Stór leikkastali verður settur upp í sumar fyrir yngri gestina.

Boðið er upp á mjög góða aðstöðu fyrir hópa til að grilla og einnig tökum við að okkur að útbúa grillveislu fyrir þá sem þess óska.

Dýragarðurinn verður opinn í sumar alla daga frá 12.00 til 17.00 en á haustin og veturna verður ekki reglulegur opnunartími en tekið á móti skólahópum og fl. eftir samkomulagi. Þá er líka sá möguleiki að opna sérstaklega á öðrum tímum dagsins fyrir hópa.

Markaðsdagar verða í Dýragarðinum nokkra daga í sumar. Þar gefst aðilum kostur á að selja framleiðslu sína í tjaldinu eða úti við. Næstu markaðsdagar eru: 6. júlí og 20. júlí. Matrkaðurinn stendur frá 13:00-16:00.

Nánari upplýsingar fást í síma 897-6075 eða á krossar1@simnet.is

Heimasíða Dýragarðsins er www.dyragardurinn.com

Fréttir | Níels Jónsson EA | Artex ehf | Sportferðir ehf | Dýragarðurinn | Bruggsmiðjan ehf | Pakkaferðir | Örnefni JÓS | Myndasafn | Site Map


Back to content | Back to main menu