Sameyki, samstarf ferðaþjónustuaðila á Árskógsströnd.
Í byrjun árs hittust nokkrir aðilar sem starfa í ferðaþjónustu á Árskógsströnd. Þetta voru aðilar frá fimm fyrirtækjum: Artex ehf, Bruggsmiðjunni ehf, Dýragarðinum Krossum, Níelsi Jónssyni EA og Sportferðum ehf.
Þessir aðilar ákváðu að stofna til samstarfsverkefnis sem fékk nafnið Sameyki. Markmið þessa alls er að kynna starfsemi þessara aðila og markaðssetja Árskógsströnd sem ferðamannastað. Þessi heimasíða er liður í þeirri markaðssetningu. Verkefnið er styrkt af Vaxtasamningi Eyjafjarðar, Byggðastofnun og Sparisjóði Svarfdæla.
Þessir aðilar skipa Sameyki:
Agnes Sigurðardóttir, Bruggsmiðjan ehf
Árni Halldórsson, Níels Jónsson EA
Haukur Snorrason, Artex ehf
Snorri Snorrason, Dýragarðurinn
Sveinn Jónsson, Sportferðir ehf
Sjá nánar um Árskógsströnd neðar.









Um Árskógsströnd
Árskógsströnd nefnist ströndin vestan megin í Eyjafirði og nær hún frá Hámundarstaðahálsi og allt inn að Torfunesmel skammt norðan við bæinn Fagraskóg sem er ysti bær í Arnarneshreppi. Ströndin eins og hún er oft nefnd samanstendur af blómlegri sveit og tveimur fallegum þorpum, Hauganesi og Litla Árskógssandi. Þar hefur í gegnum tíðina verið mikil útgerð en með minnkandi kvóta nú hin síðari ár þá hefur útgerðarfyrirtækjum fækkað talsvert. Árskógshreppur sameinaðist Dalvík og Svarfaðardalshreppi árið 1998 og heitir sameiginlegt sveitarfélag nú Dalvíkurbyggð.
Elsta byggða ból sem um er vitað við Eyjafjörð var á Hámundarstöðum. Þangað komu landnemarnir, Helgi hinn magri og Hámundur heljarskinn. Bjuggu þeir á þeirri jörð sinn fyrsta vetur á Íslandi að sögn Landnámabókar.
" Fyrir utan Hrísey og innan Svarfaðardal" segir í Þórðarbók Landnámu og kemur orðalagið allvel heim við staðhætti. Þeir hafa siglt inn Vesturál og verið skammt komnir inn með eynni er þeir ákváðu landtöku við breiða vík milli skógi vaxinna ása. Rismikið hnjúkafjall beint framundan og skammt til fagurra dala báðum megin. Í sjónleik sínum, Helga hinum magra, lætur skáldið Matthías Jochumsson, þá félaga Helga og Hámund leggja skipi sínu við klettahlein og foringjann flytja ávarp þar sem hann segir:
"Nemr nú Hámundr,
Hjörvi borinn,
óðul ný
á Árskógsströnd
Víkin þar sem landnámsmennirnir stungu stafni að landi heitir nú Reitsvík.
(Tekið úr bókinni Örnefni í Eyjafjarðarsýslu eftir Jóhannes Óla Sæmundsson)