Árskógsströnd


Go to content

Krossar

Örnefni JÓS

Krossar eiga ekki land að sjó en hafa kannski átt það fyrrum. Landamerkin gegnt Hámundarstöðum eru í Svartagili við Reitsvíkurfjöru, þaðan Merkjalækur og Þrætutunga upp í neðanverða fjallshlíðina þar sem mætast Kollhólslækur og Skriðulækur en það heitir Lækjarmót. Eftir það ræður lína í sunnanverðan Miðhnjúk. Viðmiðunarörnefni að sunnan voru talin við Garðabauga í suðausturhorni, við Strumphól neðst í fjallshlíð ogsíðast við Stórhól ( Krossastórhól) allhátt í fjalli. Á norðausturmerkjum er Hádegishóllinn. Fjallshlíðin er nefnd Krossafjall og gildir það í mæltu máli allt suður um lönd Brattavalla og jafnvel Kleifar. Hér er þó án mikils vafa Sólarfjall landemanna. Hátoppurinn á norðurenda fjallsins heitir Krossahnjúkur, 989 m. talinn frá sjávarfleti og er lausagrjótshrúga.
Hjallinn upp við kletta háfjallsins heitir Krossaskálar eða bara Skálarnar. Niður þaðan eru Krossaskriður, allvíðlendar og dável uppgrónar, hjallalausar og þægilega hallfleyttar. Upptök Merkjalækjarins sem fyrr var getið eru í landi Krossa að nokkru og allhátt í hlíð. Í gili sunnan þessa lækjar er fyrirferðarmikill steinn býsna einkennilegur og kallast nú Krossasteinn til aðgreiningar frá tveim steinum svipuðum suður ofan við Kleif í Þorvaldsdal. Misstórar kringlóttar skálar eins og meitlaðar vekja grun um eldform mannaverk. Bæjarlækur rennur eftir grunnu gili, Bæjargilinu suður og ofan við Skriðurnar. Sunnan gils þessa er Stekkurinn og svonefnt Hvíldarhall efst. Neðar er Fífumýri og utar og neðar er Kúahjalli. Örefnalaust virðist í túninu en þar sem Dalvíkurvegurinn liggur neðan gamla túnsins hét Smiðjuholt. Utar og ofar, norðvestan gamla túnsins hét stórþýfður berjamór Dundsmór (Dunsmór) en grasmói nokkru neðar hét Illviðrismór. Var spáð óþurrki er mói þessi var sleginn og þótti nokkuð gott "barómet" Neðan Krossamýrarnar út við merkin, neðan við kargaþýfðan engjablett sem hét Djöflamór, voru engi og þótt þar girnilegt heyskaparland því það var bæði eggslétt og spratt oft vel. Þar sá ég fyrst hesta-sláttuvél notaða og þótti slíkt nokkur viðburður um 1920. Milli túns og austurmerkja við Hádegishól hét sléttur fláki Krossagrundir, Krossaleitið (Leitið) var holtabunga sunnan við túnið, nú samfelldur grasvöllur. Svarðarlandið (mótekjusvæðið) Krossa- og Hellugrafir var á millibæjarmerkjunum neðan við Flóann. Árið 1934 hófst á legg nýbýlið Engihlíð á mörkum jarðanna Litla Árskógar og Krossa. Þrem áratugum síðar bættist við annað býli, Hlíðarland. Austurmörk þerra er þjóðvegurinn til Ólafsfjarðar og Dalvíkur.
(Heimild: Örnefni í Eyjafjarðarsýslu, Jóhannes Óli Sæmundsson)

Fréttir | Níels Jónsson EA | Artex ehf | Sportferðir ehf | Dýragarðurinn | Bruggsmiðjan ehf | Pakkaferðir | Örnefni JÓS | Myndasafn | Site Map


Back to content | Back to main menu