Níels Jónsson EA-106 er nánast óbreyttur fiskibátur 30 tonn að stærð smíðaður úr eik árið 1973. Bátnum hefur verið mjög vel við haldið. Hann er rúmgóður og þægilegur
og er stjórnað af atvinnu fiskimönnum með mikla reynslu af sjómennsku og veiði og hafa þeir arnaraugu fyrir hvölum þegar þá þarf að finna.
Áhöfn Níels Jónssonar hefur siglt með ferðamenn á sumrin síðan 1989.
Í hefðbundinni ferð er farið og komið frá litlu fiskimannaþorpi, Hauganesi, með viðkomu í Hrísey þar sem fólk getur fengið sér hressingu. Einnig er boðið upp á rjúkandi sjóarakaffi um
borð og að renna fyrir fisk. Þær hvalategundir sem sjást helst eru hrefna, hnýsa og höfrungar. Einnig sjást hnúfubakar og háhyrningar. Mark Carwardine, hvalasérfræðingur frá Englandi, segir Ísland eitt besta hvalaskoðunarland í Evrópu og að Eyjafjörður sé ákjósanlegur til hvalaskoðunarferða.
Brottför er frá Hauganesi sem staðsett er u.þ.b. 30 km. norður af Akureyri.
Nánari upplýsingar fást í síma 867-0000 & 852-2606 eða á niels@niels.is
Heimasíða fyrirtækisins er www.niels.is

