Sportferðir er ferðaþjónustufyrirtæki, staðsett í Eyjafirði með hópferða- og ferðaskrifstofuleyfi. Sportferðir sérhæfa sig í skipulagningu hvataferða og hópeflis fyrir fyrirtæki og einnig árshátíða- og skemmtiferða hverskonar fyrir einstaklinga,
félög og fyrirtæki. Ferðirnar eru framkvæmdar um allt land og í samvinnu við marga aðra ferðaþjónustuaðila.
Önnur sérgrein Sportferða er skipulagning og framkvæmd viðburða ss. snjókrossmótaraðar og alþjóðlegs snjókrossmóts. Einnig koma Sportferðir að viðburðum eins og golfmótinu Arctic Open sem þjónustuaðili við gesti mótsins. Það eru einnig margir aðrir viðburðir ss. hestamót og strandveiðimót sem Sportferðir koma að með ýmsum hætti.
Sportferðir bjóða einnig uppá gistingu að Ytri-Vík á Árskógsströnd í frístundahúsum fyrir einstaklinga og hópa.
Varðandi nánari upplýsingar um þjónustu okkar, þá bendum við fólki á að hafa samband við okkur sporttours@sporttours.is eða í síma 894 2967.
Allar upplýsingar um Frístundahúsin og gistingu eru í síma 899 8000 eða sporttours@sporttours.is
Heimasíða Sportferða ehf er www.sporttours.is

